Er að hlaða...

Uppspretta

Ábendingar til lánveitenda

Hvernig á að velja lánsumsóknir?

Hver og einn getur haft sínar aðferðir við að velja lánsumsóknir. Hægt er að velja út frá hugmynd, lántakandanum, lánshæfi, hversu lengi þú vilt festa peningana eða vöxtum. Mikilvægt er að þú veljir lánsumsókn sem þér líst vel á og út frá þínum forsendum.

Sendu fyrirspurn á lántakandann

Ef þér lýst vel á hugmynd í lánsumsókn en ert í vafa með einhver atriði eða telur þig ekki skilja hugmyndina nægilega vel þá skaltu nota spjallið í lánsumsókninni og senda spurningu til lántakandans. Spurningin þín og svar birtast á vefnum við lánsumsóknina.

Hvernig virkar lánshæfismatið?

Lánshæfi lántakandans mun birtast í öllum umsóknum. Upplýsingar um lánshæfi er fengið frá Creditinfo og segir til um líkur á alvarlegum vanskilun innan 12 mánuða út frá fjölda breyta sem hafa mismunandi vægi. Þjónustan sem notuð er frá Creditinfo heitir "CIP einstaklingar" og "CIP fyrirtæki".  Á heimasíðu Creditinfo á Íslandi eru að finna nánari upplýsingar um hvernig lánshæfi er metið. Einnig er að finna meiri upplýsingar um lánshæfið á undirsíðu hér til vinstri. Dæmi um breytur sem eru notaðar eru tekjuupplýsingar úr skatta- og útsvarsskrám og vanskilaupplýsingar. Einnig er er spáð fyrir um efnahagsbreytingar sem hafa áhrif á lánshæfismat allra.

Hvernig eru lánveitendur valdir?

Eftir að lánsuppboði lýkur þá eru það þeir sem voru fyrstir til að bjóða lægstu vextina sem verða lánveitendur. Þú færð skilaboð um hvort þú ert á meðal lánveitenda og ef ekki þá geturðu nálgast upphæðina sem þú festir sem lánstilboð á þjónustusíðu þinni.

Hvernig eru lokavextir valdir?

Lokavextirnir verða þeir sömu fyrir alla sem urðu fyrir valinu að verða lánveitendur. Lokavextirnir eru hámarksvextirnir af þeim lánstilboðum sem urðu fyrir valinu t.d. ef lágmarksvextirnir voru 12%, 13% og 14% þá verða lokavextir 14%.

Hvernig er hægt að lágmarka áhættu?

Dreifðu áhættunni með því að deila fjármagni á margar lánsumsóknir. Vandaðu valið þegar þú velur hverjum þú ætlar að lána. Spurðu spurninga ef þér finnst vanta upplýsingar í lánsumsókninni. Lánshæfi lántakandans getur gefið vísbendingu um líkur á endurgreiðslu en það er ekki þar með sagt að lántakandi með verra lánshæfi muni ekki greiða lánið sitt til baka. Ekki er hægt að fullyrða slíkt.