Er að hlaða...

Uppspretta

Fyrirvari

Eftirfarandi er lagalegur fyrirvari Uppsprettu sem Korbo ehf. (hér eftir nefnt fyrirtækið) er lögaðili fyrir.

Fyrirtækið á höfundarrétt á upplýsingum sem fram koma á vef nema annað sé sérstaklega tekið fram eða leiða megi af eðli máls. Lántakandi á höfundarétt á upplýsingum sem koma fram í lánsumsókn. Skriflegt samþykki þarf að liggja fyrir til endurbirtingar á upplýsingum sem fram koma á vefnum, dreifa þeim eða afrita. Engu máli skiptir hvers eðlis þær upplýsingar eru né í hvaða tilgangi ætlunin er að endurbirta, afrita eða dreifa þeim.

Fyrirtækið ábyrgist ekki að upplýsingar sem birtast á vefnum séu réttar. Fyrirtækið ábyrgist ekki efni annarra sem birt er á vefnum. Notandi er persónulega ábyrgur fyrir efni sem hann birtir á vefnum og lántakandi að setja fram réttar upplýsingar í lánsumsókn.

Óheimilt er að setja inn efni á vefsíðuna sem brýtur gegn lögum og almennu velsæmi, er ærumeiðandi, ósæmandi á einhvern hátt eða hefur að geyma óstaðfestar ásakanir eða dylgjur í garð einstaklinga eða lögaðila. Fyrirtækið áskilur sér rétt til að taka út lánsumsóknir sem brjóta gegn því sem hér fyrir ofan er talið. Fyrirtækið getur ekki undir neinum kringumstæðum borið ábyrgð á orðum og athöfnum notenda og áskilur sér rétt til að fjarlæga lánsumsóknir af vefnum án fyrirvara.

Fyrirtækið ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af upplýsingum sem birtar eru á vef þjónustunnar eða af ákvörðunum notenda um lánveitingar.

Fyrirtækið ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á vef þjónustunnar né tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefinn, um skemmri eða lengri tíma; meðal annars en ekki eingöngu, ber fyrirtækið ekki ábyrgð á tjóni vegna tapaðra viðskipta notenda.

Fyrirtækið áskilur sér rétt til þess að breyta innihaldi þessa vefs án fyrirvara og tekur ekki ábyrgð á hvers konar hugsanlegum afleiðingum slíkra breytinga.

Fyrirtækið mun ekki undir neinum almennum kringumstæðum birta upplýsingar um notanda eða veita upplýsingar til þriðja aðila, nema gegn dómsúrskurði.

Lántakendur samþykkja að lánshæfi þeirra sé athugað hjá Creditinfo og umræddar upplýsingar birtar á vef með lánsumsókn. Lánshæfi notenda er metið áhættumati Creditinfo (score), upplýsingum úr Vanskilaskrá og öðrum gagnagrunnum sem Creditinfo rekur. Fyrirtækið metur lánshæfi notenda á grundvelli gagna Creditinfo og gefur ekki frekari upplýsingar um lánshæfi til notenda.

Notkun, sem brýtur í bága við lög eða notkunarskilmála, getur haft bóta- og refsiábyrgð í för með sér.