Er að hlaða...

Uppspretta

Heilræði til lántakenda

Það skiptir miklu máli að lánsumsóknin sé vel unnin. Ef vandað er til verks eru meiri líkur á að lánveitendur séu tilbúnir að leggja fram lánsfé. Hér fyrir neðan eru nokkur atriði sem þú ættir að hafa í huga sem lántakandi.

Markaðssettu sjálfa(n) þig

Lánsumsóknin er þín leið til að ná til mögulegra lánveitenda. Settu þig í spor lánveitenda og auðveldaðu þeim ákvörðunartökuna með því að veita skilmerkilegar upplýsingar um tilefni láns og nýttu þér heilræðin sem hér eru talin upp.

Vandaðu til verks

Skrifaðu mjög skýra og góða lýsingu á því í hvað þú ætlar að nota lánið. Vandaðu málfarið og fáðu jafnvel einhvern til að lesa yfir til að gefa ábendingar. Fylltu út alla lánsumsóknina og leggðu sérstaklega áherslu á tilefni láns, stöðu verkefnis, markmið og annað sem þú telur að mikilvægt sé að nefna.

Lánsupphæð og lánstími?

Það má leiða líkum að fyrr safnist upp í lágu lánin og þau lán sem hraðast er borguð til baka. Ef þig vantar hátt lán þá er ef til vill betra að sækja fyrst um lágt lán og síðan annað lán þegar þess þarf. Veru raunsæ(r) um á hversu löngum tíma þú treystir þér til að borga lánið til baka.

Aðgreindu þig með fyrirsögn

Það er mikilvægt að vera með lýsandi fyrirsögn sem nafn á láni. Fyrirsögn sem grípur augu lánveitenda og aðgreinir þig frá öðrum. Þegar þú gerir lánsumsóknina þá þarftu að skrifa titil lánsumsóknar sem verður fyrirsögn lánsumsóknar.

Fylgstu með hinum lántakendunum

Ef þú fylgist vel með öðrum lántakendum sérðu fljótt hverjir eru að fá lán og hverjir ekki. Það má draga mikinn lærdóm af því og það getur hjálpað þér við að gera þína lánsumsókn sem virkar aðlaðandi fyrir lánveitendur.

Vextirnir

Þú setur fram hámarksvexti sem þú ert tilbúin(n) að greiða. Vextirnir geta mögulega farið eftir tilefni láns og ef til vill sætta lánveitendur sig við lægri vexti ef lána á til verkefnis, atvinnu- eða nýsköpunar. Ef lánshæfismat þitt er ekki gott þá gæti það þýtt að þú þurfir að bjóða upp á hærri vexti en þeir sem eru með gott lánshæfismat. Settu þig í spor lánveitandans þegar þú ákveður vextina og skoðaðu hvaða vexti þeir eru að bjóða sem eru að fá lánstilboð.

Mynd segir meira en mörg orð

Settu inn mynd sem er lýsandi. Þú getur sett inn mynd af þér sjálfum eða sem tengist verkefninu sem þú ert að sækja um lán til. Það styrkir lánsumsóknina ef þú setur inn mynd og lánsumsóknin mun mögulega draga að fleiri lánveitendur.

Vefsíða og meiri upplýsingar

Þú getur sett inn tengla í vefsíðu þína, blogg  eða aðrar síður. Ef þú vilt kynna þína hugmynd með myndbandi getur þú sett inn myndband á YouTube og tengt það við þig sem notanda með því að skrá slóðina undir Samfélagssíður undir Mín síða. Einnig er hægt að setja inn glærukynningu sem þú ert með inni á SlideShare. Athugaðu að láta vita í lánsumsókn að það eru nánari upplýsingar undir notanda.

Láttu vini þína vita

Láttu vini þína, ættingja og aðra í tengslaneti þínu vita að þú ert að óska eftir láni á Uppsprettu. Þegar þú hefur sett inn lánsumsókn þá er þér boðið að senda póst til vina til að láta vita af umsókninni og/eða senda link frá Uppsprettu inn í stöðuskilaboð þín (status) hjá Facebook til að láta fleiri vita og laða að sem lánveitendur.

Spjall

Nýttu þér spjallið sem er inni í lánsumsókninni þinni. Sendu inn skilaboð til að koma til skila nýjum upplýsingum til mögulegra lánveitenda.

Eru ekki komin nein lánstilboð?

Það er erfitt að fá fyrsta lánstilboðið, en eftir að það fyrsta er komið fer boltinn yfirleitt að rúlla. Hvettu vini þína og ættingja til að setja inn fyrsta lánstilboðið. Með því getur þú dregið að fleiri lánveitendur.