Er að hlaða...

Uppspretta

Hver er áhættan?

Það er áhætta fólgin í því að lána. Áhættan er sú að lántakandi geti ekki borgað af láninu. Það sem Uppspretta gerir til að draga úr áhættu er að með hverri lánsumsókn birtist lánshæfi lántakanda. Lánshæfisupplýsingarnar eru fengnar frá Creditinfo á Íslandi og sýnir áhættuna á að viðkomandi lendi í vanskilum.

Lánveitendur eru hvattir til að dreifa háum upphæðum niður á marga lántakendur til að draga úr áhættu. Ef lán er ekki greitt til baka þá er krafan send til innheimtufyrirtækisins Intrum sem sér um áframhaldandi innheimtu. Lánveitendur eru upplýstir ef illa gengur að innheimta kröfuna og munu fá endurgreitt eftir hvernig gengur að innheimta.

Örlán á milli fólks eru þó þess eðlis að meira traust er á milli lántakanda og lánveitenda. Sambærilegar lausnir erlendis sýna að þegar margir aðilar eru á bak við hvert lán geri það að verkum að lán innheimtist vel. Fólki finnst það vera ábyrgara gagnvart mörgum aðilum (einstaklingum og fyrirtækjum) heldur en bönkum eða öðrum lánastofnunum.