Skilmálar
Skilmálar Uppsprettu til samþykktar fyrir lántakanda og lánveitandaEftirfarandi eru skilmálar Korbo ehf. sem rekur örlánavefinn Uppsprettu, www.uppspretta.is, hér eftir nefnt fyrirtækið.
Almenn atriði
Með því að samþykkja skilmála þessa lýsa lántakandi annars vegar og lánveitandi hins vegar því yfir að þeir hafi kynnt sér skilmálana og skuldbinda sig til að fylgja þeim. Höfnun á samþykki skilmálanna kemur í veg fyrir að viðkomandi geti tekið lán eða veitt lán á vefnum www.uppspretta.is. Einungis fyrirtækið getur breytt skilmálunum.
Með því að samþykkja skilmála þessa lýsa lántakandi og lánveitandi því yfir að þeir hafi lesið lagalegan fyrirvara á vefnum www.uppspretta.is og samþykki efni hans.
Upplýsingar sem birtar eru á vefnum www.uppspretta.is fela á engan hátt í sér ráðleggingar um lánveitingu eða lántöku til notenda vefsins og bera þeir einir ábyrgð á þeim ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinga sem birtar eru á vefnum. Fyrirtækið ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af slíkri upplýsingagjöf á vefnum.
Ákvörðun um að taka lán og veita lán eru ákvarðanir lántakanda og lánveitenda sjálfra. Fyrirtækið ber enga ábyrgð á tjóni sem lántakandi eða lánveitandi kann að verða fyrir vegna viðskipta þeirra á milli. Fyrirtækið ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að rekja til þess að byggt hefur verið á röngum upplýsingum sem birtast á vefnum.
Fyrirtækið ber ekki ábyrgð ef lántakandi endurgreiðir ekki lán til lánveitanda á tilskyldum tíma eða vegna hvers konar vanskila. Fyrirtækið sér einungis um að miðla greiðslum á milli aðila en fjármagnar ekki lán og getur því ekki ábyrgst endurgreiðslur til lánveitenda þar sem endurgreiðslur eru háðar því að lántakandi greiði lán til baka.
Lánaviðskipti eru mjög áhættusöm í eðli sínu. Notendur eru hvattir til að afla sér almennra upplýsinga um eðli lánaviðskipta og áhættuna sem þeim fylgir.
Fyrirtækið telst ekki aðili að lánssamningi milli lántakanda og lánveitanda.
Grunur um refsiverða háttsemi notenda vefsins verður tilkynntur til þar til bærra yfirvalda.
Skráning og auðkenni
Skilyrði fyrir skráningu er að notandi hafi náð 18 ára aldri, hafi íslenska kennitölu og sé í viðskiptum við íslenskan banka. Notandi er auðkenndur þannig að sendur er kóði í heimabanka hans sem þarf að sækja til staðfestingar.
Notandi ber ábyrgð á að skrá réttar upplýsingar í skráningarviðmót. Jafnframt ber notandi ábyrgð á að halda notandanafni og lykilorði leyndu fyrir utanaðkomandi. Notendur bera ábyrgð á færslum sem eru gerðar á þeirra notandanafni.
Notandi velur hvort lánsumsókn eða boð um lánveitingu birtist undir réttu nafni viðkomandi eða notandanafni. Lánshæfi birtist ávallt með hverri lánsumsókn hvort sem valið er að birta rétt nafn með lánsumsókn eða notandanafn.
Lánstraust
Notendur samþykkja að lánshæfi þeirra sé athugað hjá Creditinfo Ísland hf. (hér eftir nefnt Creditinfo) og umræddar upplýsingar birtar á vefnum með lánsumsókn. Lánstraust notenda er metið áhættumati Creditinfo (score), upplýsingum úr vanskilaskrá og öðrum gagnagrunnum sem Creditinfo rekur.
Fyrirtækið ber ekki ábyrgð á upplýsingum frá Creditinfo eða mati þess á lánshæfi umsækjanda um lán.
Greiðsla láns og inneign notenda
Umsækjandi um lán getur hafnað láni áður en greiðsla láns hefur verið innt af hendi frá lánveitendum inn á reikning hans. Þegar lántakandi hefur samþykkt lán er það bindandi.
Hægt er að greiða upp lán ásamt vöxtum án sérstaks uppgreiðslugjalds hvenær sem er á lánstímanum.
Greiðsla láns til lántakanda fer fram næsta virka dag eftir að uppboði láns lýkur. Greitt er inn á reikning lántakanda hjá Uppsprettu.
Lánveitendur greiða inn á biðreikning þegar þeir bjóða í lán. Ef lánveitandi er ekki á meðal þeirra sem leggja fram lánsframlag til valins láns þá getur viðkomandi nýtt lánsframlagið í önnur lán eða fengið endurgreitt. Lánveitandi framkvæmir endurgreiðslu á þjónustusíðu sinni. Engir vextir reiknast á inneignir á biðreikningi. Lánveitandi getur ekki dregið boð um lán til baka eftir að það hefur verið fært á biðreikning.
Ef ofgreitt er til notenda hvort sem er upphæð láns eða endurgreiðsla á láni, áskilur fyrirtækið sér rétt til að leiðrétta að notandanum upplýstum.
Fjármagnstekjuskattur
Fyrirtækið er skilaskyldur aðili á staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts fyrir hönd notenda þjónustunnar. Fjármagnstekjuskattur er reiknaður og kemur til frádráttar af vaxtatekjum skv. lögum sem gilda um fjármagnstekjuskatt hverju sinni.
Rafræn undirritun
Rafræn undirritun á www.uppspretta.is er jafngild skriflegri undirritun milli lántakanda og lánveitanda.
Samningsaðilar samþykkja samning rafrænt og samningur er sendur á netfang sem gefið er upp í lánsumsókn. Lántakandi staðfestir með samþykki sínu að hann hafi kynnt sér efni samnings.
Þjónustugjald
Þjónustugjald er greitt af lántakanda skv. gildandi gjaldskrá fyrirtækisins hverju sinni og er dregið frá lánsupphæð sem lögð er inn á reikning lántakanda.
Endurgreiðslur og vanskil
Fyrirtækið miðlar endurgreiðslum láns til lánveitenda næsta virka dag eftir eindaga að því tilskildu að endurgreiðsla frá lántaka berist á tilsettum tíma. Greiðsluseðlar eru sendir til lántakenda. Ef greiðsla lántakanda hefur ekki borist á eindaga er krafan send Intrum á Íslandi ehf. (hér eftir nefnt Intrum) til áframhaldandi innheimtu.
Ef krafa er ógreidd tíu dögum eftir eindaga, sendir Intrum út innheimtuviðvörun í nafni fyrirtækisins á lántakanda þar sem athygli er vakin á að vanskil geta leitt til frekari innheimtuaðgerða á grundvelli réttarfarslaga. Innheimtukostnaður og dráttarvextir leggjast ofan á kröfuna sem lántakanda ber að greiða skv. gjaldskrá Intrum.
Fyrirtækið áskilur sér rétt til að gjaldfella lán ef þrjár greiðslur tiltekins láns hafa fallið í vanskil.
Fyrirtækið áskilur sér rétt til að hafna nýrri lánsumsókn ef lántakandi hefur ekki staðið í skilum með útistandandi lán sem fengin hafa verið í gegnum vefinn www.uppspretta.is.
Upplýsingar um notendur
Upplýsingar um notendur sem vistaðar eru hjá fyrirtækinu verða ekki afhentar þriðja aðila nema þá skyldu megi leiða af lögum, stjórnvaldsfyrirmælum, dómsúrskurði eða ákvörðun stjórnvalds.
Ef upp koma mál, þar sem fyrirtækið telur notanda brjóta í bága við lög eða gegn almennu velsæmi, áskilur fyrirtækið sér fullan rétt til að gefa upp rétthafa notandanafns sem um ræðir. Einnig áskilur fyrirtækið sér rétt til að veita yfirvöldum þær upplýsingar sem kunna að vera málinu viðkomandi.
Upplýsingar og efni á vef
Fyrirtækið á höfundarréttinn á upplýsingum sem fram koma á vefnum www.uppspretta.is nema annað sé sérstaklega tekið fram eða leiða megi af eðli máls. Lántakandi á höfundarétt að upplýsingum sem koma fram í lánsumsókn. Skriflegt samþykki fyrirtækisins þarf að liggja fyrir til endurbirtingar á upplýsingum sem fram koma á vefnum, dreifa þeim eða afrita. Engu máli skiptir hvers eðlis þær upplýsingar eru né í hvaða tilgangi ætlunin er að endurbirta, afrita, eða dreifa þeim.
Fyrirtækið ábyrgist ekki að upplýsingar sem birtast á vefnum séu réttar. Fyrirtækið ábyrgist ekki efni annarra sem er birt á vefnum. Notandi er persónulega ábyrgur fyrir öllu efni sem hann birtir á vefnum og lántakandi ber ábyrgð á að setja fram réttar upplýsingar í lánsumsókn.
Óheimilt er að setja inn efni á vefsíðuna sem brýtur gegn lögum og almennu velsæmi, er ærumeiðandi, ósæmandi á einhvern hátt eða hefur að geyma óstaðfestar ásakanir eða dylgjur í garð einstaklinga eða lögaðila. Fyrirtækið áskilur sér rétt til að taka út lánsumsóknir sem brjóta gegn því sem hér fyrir ofan er talið. Fyrirtækið getur ekki undir neinum kringumstæðum borið ábyrgð á orðum og athöfnum notenda.
Upplýsingar sem birtar eru á vefsíðunni fela á engan hátt í sér ráðleggingar um lántökur og bera notendur vefsins einir ábyrgð á þeim ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinga í lánsumsóknum. Fyrirtækið ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af upplýsingum sem birtar eru á www.uppspretta.is eða af ákvörðunum notenda um lánveitingar.
Kynning á þjónustu
Með samþykkt skilmála þessara veitir notandi fyrirtækinu heimild til að eiga samskipti við sig með sendingu tölvupósta sem varða þjónustu fyrirtækis.
Fyrirtækinu er heimilt að tilgreina notendur opinberlega í kynningarskyni sem einn af notendum Uppsprettu, þ.m.t. senda út fréttatilkynningar, birta auðkenni (logo) o.s.frv.
Annað
Fyrirtækið ber hvorki ábyrgð á tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á vef þjónustunnar né tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefinn, um skemmri eða lengri tíma; meðal annars, en ekki eingöngu, ber fyrirtækið ekki ábyrgð á tjóni vegna tapaðra viðskipta notenda.
Notkun, sem brýtur í bága við lög eða notkunarskilmála, getur haft bóta- og refsiábyrgð í för með sér.
Fyrirtækið áskilur sér rétt til að loka fyrir aðgang notenda.
Um framsal gilda almennar reglur.
Komi til ágreinings milli lántaka og lánveitanda verða þeir að leysa úr þeim ágreiningi sín á milli. Ágreiningur um lánasamning þennan skal leystur fyrir íslenskum dómstólum skv. íslenskum lögum.
