Er að hlaða...

Uppspretta

Spurt og svarað

 

Almennt

Lántakendur

Lánveitendur


Almennt - Svör

Hvað er Uppspretta?

Uppspretta er vefsíða sem leiðir saman fólk, hugmyndir og lánsfé. Þú getur óskað eftir láni eða lánað öðrum. Uppspretta kemur á samningi og heldur utan um greiðslur og miðlar á milli lántakenda og lánveitenda. Þjónusta Uppsprettu er t.d. tilvalin leið fyrir þá sem eru að sinna nýsköpun eða atvinnusköpun til að verða sér úti um lán!

Er Uppspretta banki?

Nei Uppspretta er ekki banki og er ekki á vegum neins banka. Hlutverk Uppsprettu er að vera vettvangur lánsumsókna og miðla greiðslum á milli lántakenda og lánveitenda. Þjónusta Uppsprettu er ekki leyfisskyld skv. Fjármálaeftirlitinu (FME).

Er sambærileg þjónusta til annars staðar?

Það eru til örlánavefir víðs vegar um heiminn og núna er kominn tími á að Íslendingar fái sinn örlánavef. Örlánavefur gefur fólki tækifæri á að lána hvert öðru á formlegan hátt án nokkurra samskipta við banka. Internetið hefur þann kost að hægt er að ná til margra, hvort sem er lántakenda eða lánveitenda.

Hverjir geta skráð sig á Uppsprettu og orðið notendur?

Notendur Uppsprettu þurfa að vera orðnir 18 ára, hafa íslenskan bankareikning og skráðir með lögheimili á Íslandi. Einnig geta lántakendur ekki verið á vanskilaskrá.

Hvernig verð ég notandi Uppsprettu?

Þú ferð í gegnum skráningarviðmót þar sem þú skráir helstu upplýsingar um þig eins og nafn, netfang, velur þér notandanafn og lykilorð. Þegar við höfum fengið allar nauðsynlegar upplýsingar þá þarftu að staðfesta hver þú ert. Þú sækir fimm stafa kóða í netbankann þinn sem þú slærð inn til að þú komist áfram í skráningunni. Þú fylgir ferlinu í skráningunni og tekur síðan ákvörðun um hvort þú viljir lána eða ætlir að taka lán. 

Get ég skráð eitthvað annað nafn en mitt eigið?

Nei það er ekki hægt. Við auðkennum að þú ert sá/sú sem þú ert í gegnum netbankann þinn. Aftur á móti getur þú valið hvort þú viljir birta þitt eigið nafn eða notandanafn í lánsumsókn eða sem lánveitandi.

Get ég skráð mig sem einstakling og líka fyrirtækið mitt?

Já þú getur það en þú þarft að byrja á því að skrá þig sem einstakling og síðan fyrirtækið þitt. Þú ert síðan tengdur við fyrirtækið og getur leyft öðrum að fá aðgang að fyrirtækinu.

Hver er ávinningur viðskiptavina Uppsprettu?

Lántakandinn fær tækifæri á að koma hugmynd sinni og lánsumsókn á framfæri til margra á opinberum vettvangi og lánveitendur fá yfirlit yfir hvernig þeir geta ávaxtað sína peninga. Það er einfalt og fljótlegt að setja inn lánsumsókn á vefsíðuna og samskipti við banka ekki nauðsynleg. Vextir ákvarðast af fólkinu sjálfu og hefur fólk því meiri stjórn á sínum kjörum.

Hvernig hef ég samband við Uppsprettu?

Þú getur sent okkur tölvupóst með fyrirspurn á netfangið okkar (uppspretta@uppspretta.is) og við höfum samband eins fljótt og auðið er.

Birtist nafn mitt á lánsumsókn?

Það er undir þér sjálfri/sjálfum komið hversu miklar upplýsingar þú gefur upp í lánsumsókn eða sem lánveitandi. Þú ert nafnlaus gagnvart öðrum þátttakendum Uppsprettu nema þú hafir merkt við í skráningu að nafn þitt eigi að birtast í stað notandanafns. Aftur á móti teljum við það auka líkur á að upp í lán fyllist ef rétt nafn birtist með lánsumsókn.

Er skilyrði fyrir lánsumsókn að upplýsingar um lánshæfi birtist í lánsumsókn?

Skilyrði fyrir umsókn að láni er að lántakandi veitir Uppsprettu heimild til að ná í upplýsingar um lánshæfi viðkomandi í gegnum Creditinfo. Upplýsingar um lánshæfi lántakanda er birt með lánsumsókn og því opinbert á vefsíðunni. Lántakandi ákveður sjálfur hvort hann/hún vilji birtast undir notandanafni eða gefa upp sitt eigið nafn í lánsumsókn. Ef notandi er á vanskilaskrá þá er ekki í boði að birta lánssumsókn á Uppsprettu.

Af hverju er lánshæfismatið stundum bókstafur og stundum tölustafur?

Einstaklingar fá lánshæfismat á bilinu A-E og fyrirtæki fá lánshæfismat á bilinu 1-10. Þannig að þegar lántakandi er með lánshæfismat sem er bókstafur þá er um einstakling að ræða og um fyrirtæki að ræða þegar lántakandi er með tölustaf.

Ég hef gleymt lykilorðinu mínu, hvað geri ég?

Ef þú hefur gleymt lykilorðinu þínu getur þú fengið sent nýtt lykilorð með því að smella á "Innskrá mig" efst í hægra horni síðunnar og því næst á „Gleymt lykilorð“.

Hvað geri ég til að breyta bankareikningsnúmerinu?

Þú getur breytt reikningsnúmeri þínu hvenær sem er undir minni síðu. Bankareikningsnúmerið er notað til að staðfesta hver þú ert þ.e. kóði er sendur á það bankareikningsnúmer sem þú gefur upp í skráningu og þú þarft að sækja kóðann til að staðfesta hver þú ert. Þú þarft að millifæra yfir á Uppsprettu reikninginn þinn áður en þú getur lánað öðrum. Þú millifærir af þeim bankareikningi sem þú skráir og sömuleiðis millifærir þú á þann bankareikning yfir af Uppsprettu reikningnum þegar þú vilt.

Hvað geri ég ef ég er ekki með heimabanka?

Ef þú ert ekki með heimabanka þá þarftu að hringja í bankann þinn til að fá upplýsingar um kóðann sem var sendur á bankareikninginn þinn. Gefðu upp reikningsnúmerið sem þú skráðir á Uppsprettu og þá er auðvelt fyrir þjónustufulltrúa að finna fimm stafa kóðann sem birtist undir seðilnúmeri eða tilvísun.

Til hvers er verið að millifæra 1 kr. á bankareikninginn minn?

Lögð er inn 1 kr. á bankareikninginn þinn til að geta auðkennt þig sem notanda. Þú getur séð þessa færslu inn á bankareikningnum þínum og henni tilheyrir fimm stafa kóði sem þú þarft að slá inn á Uppsprettu til að staðfesta hver þú ert.

Hversu langan tíma tekur millifærslan með staðfestingarkóðanum og krónunni?

Venjulega tekur millifærslan skamma stund, ef til vill fáar mínútur. En ef þú ert að staðfesta þig eftir kl. 21 eða um helgi þá tekur millifærslan einn virkan bankadag.

Hvað gerist ef ekki næst að fylla upp í lán áður en lánstilboðið rennur út?

Ef ekki næst að fylla upp í lán áður en lánstilboðið rennur út þá fellur lánsumsóknin úr gildi. Lánveitendur fá endurgreitt inn á reikninginn sinn hjá Uppsprettu það sem þeir lögðu fram en lántakandinn getur sett aftur inn lánsumsókn ef hann kýs það. Í þessu samhengi verður að hafa í huga að lántakendur geta sjálfir komið lánsumsókninni á framfæri með því að setja tengil inn á Facebook sem vísar á lánsumsóknina og sent tölvupósta á vini. Einnig verður að hafa í huga að það getur verið erfitt að fylla upp í há lán og ef til vill betra og taka minna lán fyrst og óska síðar eftir öðru láni.

Lántakendur - Svör

Hversu hátt lán get ég sótt um í gegnum Uppsprettu?

Þú getur fengið lán frá 50.000 kr. til 3.000.000 kr.

Verður maður að undirrita eitthvað skjal til að samningurinn verði gildur?

Við notum rafrænar undirskriftir og því þarf fólk ekki að prenta út samning til að skrifa undir. Þegar þú skráir þig ferðu í gegnum ferli sem sannar það hver þú ert og þú samþykkir ákveðna skilmála. Þegar lánsuppboði lýkur þarf lántakandi að samþykkja eða hafna því að taka lánið. Þegar lántakandi samþykkir lán samþykkir hann um leið lánssamninginn og lánsupphæðin er laus fyrir  lántakandann að því loknu.

Verð ég að taka lánið sem ég sótti um?

Þú ert ekki bundin(n) lánssamningnum fyrr en þú hefur samþykkt að taka lánið í lok lánsuppboðs. Þú getur hætt við að taka lán áður en þú samþykkir það. Í lánsumsókninni getur þú valið að loka láni og í næsta skrefi hafnar þú láni.

Hvað eru hámarksvextir sem ég þarf að greiða af láninu?

Þú setur sjálf(ur) fram í lánsumsókn hvaða hámarksvexti þú ert tilbúin(n) að greiða og lánveitendur setja fram í lánsuppboði hvaða lágmarksvexti þeir eru tilbúnir að fá sem geta aldrei verið hærri en hámarksvextirnir sem þú settir fram. Vextirnir verða því ekki hærri en þeir vextir sem þú tilgreindir sem hámarksvexti.

Get ég fengið nafnið hjá þeim sem lána mér?

Nei, ekki eru veittar upplýsingar um lánveitendur og undir þeim sjálfum komið hvort þeir gefi upp nafn sitt eða notandanafn.

Hvernig reikna ég út mánaðarlegar greiðslur af láninu?

Þú getur notað lánareiknivélina sem er á Uppsprettu til að sjá hver mánaðarleg greiðsla kemur til með að verða. Hún gefur þér líka upp annan kostnað sem af láninu hlýst.

Hvað er árleg hlutfallstala kostnaðar?

Árleg hlutfallstala kostnaðar er heildarlántökukostnaður, lýst sem árlegri prósentu af upphæð höfuðstólsins. Talan sýnir summuna af vöxtum og lántökukostnaði. Þessi tala er reiknuð til að neytandi hafi möguleika á að bera saman lán frá ólíkum lánastofnunum þar sem gjöld og vextir eru mismunandi.

Hvernig fæ ég lánið greitt sem ég sótti um?

Þegar lánsuppboði er lokið og þú hefur samþykkt lánsumsóknina endanlega er lánið greitt inn á Uppsprettu reikninginn þinn. Þú getur þá millifært upphæðina yfir á bankareikninginn sem þú gafst upp í skráningunni.

Hversu lengi tekur að millifæra lánið inn á reikninginn minn?

Þegar þú hefur samþykkt lánsumsóknina þá á greiðslan að skila sér inn á Uppsprettu reikninginn þinn innan skamms. Þú millifærir síðan sjálf/ur upphæðina inn bankareikninginn sem þú gafst upp í skráningunni. Gera má ráð fyrir að millifærslan taki einn virkan dag.

Get ég fengið lánið millifært inn á erlendan bankareikning?

Uppspretta sér ekki um að millifæra á aðra reikninga en á Uppsprettu reikninginn. Notandi getur síðan eingöngu millifært af Uppsprettu reikningnum yfir á íslenskan bankareikning sem hann getur upp í skráningu.  

Get ég ákveðið hversu oft ég greiði af láninu?

Hægt er að velja hvenær fyrsta greiðsla er greidd þ.e. að hámarki er hægt að fresta fyrstu greiðslu um 9 mánuði. Þetta er gert fyrir þá aðila sem eru t.d. í þróun og þurfa tíma áður en tekjur fara að berast inn. Greiðslur eru annars mánaðarlegar.

Fyrir hvaða dag þarf að greiða greiðsluseðilinn?

Eindagi er fimmti hvers mánaðar. 

Get ég borgað lánið upp á skemmri tíma en upphaflega var ákveðið í lánsumsókn?

Já, þú getur borgað upp allt lánið í einu ásamt vöxtum ef þú óskar eftir því.  Nauðsynlegt er að hafa samband við Uppsprettu til að greiða lán á skemmri tíma en var áætlað.

Þarf að greiða uppgreiðslukostnað á láni?

Nei enginn auka kostnaður er fyrir að greiða upp lán á skemmri tíma en gert var ráð fyrir í lánsumsókn en greiða þarf vexti ásamt höfuðstól fyrir allt tímabilið. Ástæðan fyrir því er að tryggja lánveitendum fyrirfram ákveðna ávöxtun á lánsfé sitt sem var samþykkt í lánssamningi.

Hvað hef ég langan tíma til að samþykkja lánssamning?

Þegar lánsútboði lýkur þá þarftu að staðfesta lánssamninginn áður en hægt er að greiða upphæðina til þín. Þú hefur að hámarki eina viku til að samþykkja lánssamninginn.

Hvað gerist ef ég vanræki að greiða mánaðarlega kröfu?

Ef þú greiðir ekki greiðsluseðil á eindaga þá er áminning send til þín í tölvupósti.  Tíu dögum eftir eindaga er búið að senda kröfuna til Intrum í áframhaldandi innheimtu. Mikilvægt er að greiða greiðsluseðil á eindaga til að  komast hjá því að greiða aukalega innheimtukostnað og til að endurgreiðsla til lánveitenda geti átt sér stað.
Ef þú ítrekað greiðir ekki mánaðarlegar kröfur þá áskilur Uppspretta sér rétt til að gjaldfella allt lánið og þú munt þurfa að greiða allt lánið en ekki mánaðarlegar kröfur. Hafa ber í huga að ef þú greiðir ekki mánaðarlegar kröfur þá mun það koma niður á lánveitendum sem samþykktu að lána þér. Ef þú sækir aftur um lán þá mun það birtast í lánaumsókn ef þú hefur vanrækt að greiða eldri lán.

Get ég verið með fleiri en eitt lán í gangi?

Það er hægt að vera með tvö lán í gangi í einu en það er gefið upp í lánsumsókn ef þú ert með annað lán í gangi.

Hvað kostar að fá lán í gegnum vefinn?

Lántakandi greiðir 4% þjónustugjald sem dregið er af lánsupphæð í upphafi áður en lánsupphæð er greidd inn á reikning lántakanda á Uppsprettu.

Lánveitendur - Svör

Hversu háa upphæð get ég lánað í gegnum Uppsprettu?

Þú getur lánað frá 2.500 krónum í hverju lánsuppboði. Þú getur í rauninni lánað fólki eins mikið og þú vilt en við leggjum áherslu á að fólk dreifi áhættunni með því að lána frekar smærri upphæðir til margra aðila.

Af hverju þarf ég að gefa upp reikningsnúmerið mitt í nýskráningu?

Við notum reikningsnúmerið þitt til að auðkenna þig. Við auðkennum þig með því að senda þér tilvísunarnúmer í heimabankann þinn sem þú notar til þess að staðfesta hver þú ert, síðar í skráningarferlinu.

Hvernig millifæri ég peninga til og frá Uppsprettu?

Til að geta boðið einhverjum lánsfé þarft þú að vera búin(n) að setja inn peninga á þinn reikning hjá Uppsprettu. Þú getur bæði lagt inn og tekið út af þínum reikningi hjá Uppsprettu með því að fara á mína síðu > Millifærslur. Ef þú vilt taka út af reikningnum, fyllir þú út hversu háa upphæð þú ætlar að taka út og velur reikningsnúmer sem þú vilt leggja inn á. Millifærslan gerist næsta virka bankadag.

Hvernig vel ég lántakendur?

Þú ættir að velja lántakendur út frá því hvaða áhættu þú ert tilbúin(n) að taka og út frá hvaða ávöxtun þú vilt fá. Einnig ættir þú að skoða í hversu langan tíma þú ert tilbúin(n) til að hafa peningana þína bundna. Það er alltaf undir þér komið hverjum þú velur að lána, hvort sem það er út af kjörum eða þú vilt styðja við góða hugmynd.

Hvernig ákveð ég hvaða vexti ég get boðið lántakendum mínum?

Þú ákveður sjálf(ur) á hvaða kjörum þú vilt lána peningana þína út frá ávöxtun þú vilt fá. Að auki getur þú metið áhættuna og lánað þeim sem eru með verri lánshæfni með hærri vöxtum en þeim sem eru með mjög góða lánshæfni. Vextirnir sem lántakandinn fær eru ákveðnir í lánsuppboðinu. Þegar búið er að bjóða það mikið í lánstilboðið að upphæðinni hefur verið náð er enn hægt að bjóða í lánið en þá byrja þeir sem bjóða hæstu vextina að detta út af listanum yfir mögulega lánveitendur. Ef þeir lágmarksvextir sem þú getur boðið eru háir miðað við aðra í listanum eru líkur á að þú munir detta út sem lánveitandi þessa aðila. Aftur á móti í þeim tilboðum þar sem þú nærð að vera með sem lánveitandi muntu fá þá ávöxtun sem þú bauðst eða jafnvel hærri vexti en þú settir sem lágmarksvexti.

Er einhver kostnaður sem lánveitandi tekur á sig?

Nei, lánveitandi tekur engan lánskostnað á sig. Lántakandi greiðir allan lánskostnað vegna lána í gegnum Uppsprettu.

Tekur það einhvern tíma að millifæra pening á Uppsprettu reikninginn minn?

Þegar þú millifærir á Uppsprettu reikninginn þinn af bankareikningi þá tekur það virkan dag fyrir millifærsluna að koma til Uppsprettu. Ef upphæðin fer út af bankareikningnum þínum þá er upphæðin á leið til Uppsprettu daginn eftir. Aftur á móti þegar þú millifærir frá Uppsprettu yfir á bankareikninginn þá tekur það skamma stund svo framarlega sem það er ekki eftir kl. 21 eða um helgi.

Er hægt að fá til baka peninginn sem ég lánaði áður en lánstíma lýkur?

Nei, ekki er hægt að innkalla lán áður en lánstíma lýkur. Lántakandinn getur þó ákveðið sjálfur að borga lánið upp fyrr en var áætlað. Þegar þú velur lánsumsókn þá velurðu hversu fljótt þú getur fengið peninginn til baka og því mikilvægt að velja lánsumsóknir sem henta þínum þörfum.

Ábyrgist Uppspretta ákveðna ávöxtun?

Nei, Uppspretta ábyrgist ekki vissa ávöxtun fyrir notendur.  Hámarksvextir eru ákveðnir af lántakandanum og lágmarksvextir af lánveitendum og þannig ákvarðast vextirnir í uppboði. Lántakendur eru hvattir til að dreifa hærri upphæðum á milli lánsumsókna til að dreifa áhættunni og ávöxtuninni.

Hvar get ég séð yfirlit yfir lánstilboðin mín?

Á minni síðu sérðu yfirlit yfir lánstilboðin sem þú hefur gert. Fyrirhugað er að bæta inn frekari upplýsingum fyrir lánveitendur til að hafa betra yfirlit yfir fjárfestingar og ávöxtun.

Get ég hætt við lánstilboð áður en lánsumsóknin rennur út?

Þegar þú gerir lánstilboð þá er það bindandi og ekki er hægt að hætta við lánstilboð. Það verður að vera alvara á bak við lánstilboð annars væri ekkert mark takandi á útboðinu og þeirri upphæð sem hefur safnast upp í lánið.

Fæ ég vexti strax og ég legg inn lánsframlag?

Þegar þú býður í lán og leggur inn lánsframlag þá ertu ekki sjálfkrafa orðinn ein(n) af þeim sem munu lána upp í heildarlánið. Það kemur ekki í ljós fyrr en að uppboði loknu hvort þú hafir verið meðal þeirra sem buðu lægstu vextina og sért einn af lánveitendum.  Ef þú ert einn af lánveitendum þá munu vextir miðast út frá fyrsta vaxtadegi og ekki fyrr en lánssamningur hefur verið samþykktur.  Ef þú ert ekki einn af lánveitendum þá er lánsframlagið endurgreitt inn á Uppsprettu reikninginn þinn.

Eru betri vextir hjá Uppsprettu en hjá bönkum?

Uppspretta ákveður ekki vextina heldur eru það notendur sem ákveða hvaða vexti þeir vilja greiða og á hvaða vöxtum þeir eru tilbúnir að lána. Uppspretta tekur engan hlut af vöxtunum heldur eru þeir að öllu ákveðnir af notendum og með öllu millifærðir á milli notenda fyrir utan fjármagnstekjuskatt sem skilað er til skattsins. Notendur ákveða því sjálfir hvort vextir séu betri hjá Uppsprettu en hjá bönkum.

Er greiddur fjármagnstekjuskattur af vöxtunum?

Já, greiddur er fjármagnstekjuskattur af vöxtunum sem fást af hverju láni.  Uppspretta sér um skil á fjármagnstekjuskatti til skattsins og heldur því eftir þeim hluta af vöxtunum og stendur skil á gagnvart skattinum.