Er að hlaða...

Uppspretta

Stofnendur

Hugmyndafræðin

Á bak við Uppsprettu standa nokkrir frumkvöðlar sem fannst tími til kominn að bjóða upp á nýja lausn sem gæti hjálpað til við að auka nýsköpun og atvinnusköpun á Íslandi með því  að miðla lánsfé á milli fólks.

Við vonum að Íslendingar taki vel í þessa þjónustu og verði virkir þátttakendur á Uppsprettu og láti gott af sér leiða hvort sem er sem lántakendur eða lánveitendur.

Við trúum að við getum náð árangri með því að taka höndum saman og munum vinna að heilindum fyrir viðskiptavini Uppsprettu.

Við erum þrjú sem erum stofnendur og stjórnendur fyrirtækisins Korbo ehf. sem er á bak við örlánaþjónustuna Uppsprettu. Við höfum enga aðra starfsmenn en mjög margir hafa lagt okkur lið til að okkur yrði kleift að setja þjónustuna í loftið. Við göngum annars í öll verk sjálf og leggjum áherslu á að halda öllum rekstrarkostnaði í lágmarki.

Stofnendur og starfsmenn Uppsprettu

Ragnheiður H. Magnúsdóttir  | netfang ragnheidur@uppspretta.is | sími 821 7605

Ragnheiður hefur unnið að vöruþróun í rétt tæpan áratug. Hún var framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Mentis hf. í tæp þrjú ár og á árunum 2000-2006 starfaði hún hjá Símanum í fjölmörgum verkefnum tengdum vöruþróun og verkefnastjórnun, fyrst sem verkefnastjóri og seinna sem forstöðumaður Verkefnastofu Símans.

Ragnheiður er vélaverkfræðingur með master í vöruþróun og framleiðslu frá Aalborg University í Danmörku.

Ragnheiði finnst fátt skemmtilegra en að eyða stundum með fjölskyldu og vinum. Henni finnst gaman að ferðast um Ísland og hefur aðgang að yndislegu athvarfi í Dölunum sem hún notar óspart. Áhugamálin í dag eru skvass, blak og silungsveiði í góðum hópi.


Björk Theodórsdóttir  | netfang bjork@uppspretta.is | sími 844 1400

Björk starfaði í 8 ár í ýmsum störfum hjá Símanum en lengst af sem vörustjóri og deildarstjóri Lausna á bæði Farsíma- og Fyrirtækjasviði Símans. Frá 2007 - 2008 starfaði hún sem rekstrarstjóri hjá Pennanum.

Björk er markaðsfræðingur með MBA gráðu frá Leeds University í Bretlandi.

Áhugamálin breytast nú á milli árstíða en hún hefur alltaf gaman af tilrauna eldamennsku þó hún lofi engu um árangurinn og síðan koma hjólreiðar sterkt inn eftir að hafa búið í Lundi í Svíþjóð um tíma þar sem landslagið er sérstaklega hentugt fyrir hjólafólk.


Ingi Gauti Ragnarsson | netfang ingig@uppspretta.is | sími 699 5335

Ingi Gauti hefur starfað við forritun í 9 ár við mörg ólík verkefni og hefur unnið á Íslandi, Danmörku og í New York. Hann hefur til að mynda unnið við og rekið barnaland.is, dyraland.is, bloggland.is, babyverden.dk, babyworld.net ofl. Önnur störf eru til að mynda hjá Seadata ehf. og Vyre ehf.

Ingi Gauti er tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík.

Áhugamál Inga Gauta tengjast flest tölvum, tækni og vöruþróun. Hann er þó mikill aðdáandi Star Trek þó hann flíki því ekki mikið. Einhver vildi þó halda fram að hann ætti búning eins og Spock er í en það hefur ekki verið staðfest.