Er að hlaða...

Uppspretta

Verðskrá og innheimta

Verðskrá

Verðskrá Uppsprettu er mjög einföld og þannig viljum við hafa það.
  • Lántakandi greiðir 4% af lánsupphæðinni í þjónustugjald, þar af er innifalinn virðisaukaskattur 25,5%
  • Þjónustugjaldið er aðeins greitt ef lán verður að veruleika og er dregið af lánsupphæð
  • Lánveitandi greiðir ekkert þjónustugjald
  • Það kostar ekkert að skrá sig
  • Það er ekkert uppgreiðslugjald
  • Rafrænn greiðsluseðill 120 kr.

Endurgreiðsla

Greiðsluseðill er sendur til lántakanda mánaðarlega til greiðslu frá fyrsta gjalddaga. Eindagi er fimmti hvers mánaðar. Endurgreitt er til lánveitenda degi eftir eindaga þegar greiðsla hefur borist frá lántakanda. Greiðsluseðill er sendur rafrænt á heimabanka sem kostar 120 kr. Hægt er að greiða upp lán ásamt vöxtum án sérstaks uppgreiðslugjalds hvenær sem er á lánstímanum.

Innheimta

Lántakendur eru hvattir til að greiða á tilskildum tíma til að hægt sé að endurgreiða lán til lánveitenda og til að komast hjá kostnaði vegna innheimtu. Ef innheimta reynist árangurslaus er krafan send Intrum á Íslandi ehf. til áframhaldandi innheimtu. Innheimtukostnaður og dráttarvextir leggjast ofan á kröfuna sem lántakanda ber að greiða skv. gjaldskrá Intrum.