Taka lán
Nýskrá migSækja um lán
Hvernig á að taka lán?
Þú þarft að vera skráður notandi á Uppsprettu til að taka lán. Þú byrjar á að nýskrá þig sem notanda og fylgir ferlinu. Þegar lokið er að staðfesta þig sem notanda og sækja lánshæfismat þá skráir þú upplýsingar í lánsumsókn sem birtist fyrir allra augum á Uppsprettu.Á Uppsprettu hefur þú tækifæri til að ná til mögulegra lánveitenda. Þú setur inn upplýsingar og þínar óskir í lánsumsóknina sem birtist á vefnum og laðar þannig til þín lánveitendur. Þú getur kynnt lánsumsóknina þína með því að setja tengil inn á Facebook, Twitter eða sent til vina, vandamanna og velunnara sem þú telur að vilji lána þér til góðra verka.
Hversu hátt lán get ég fengið?
Hægt er að sækja um örlán frá 100.000 kr. til 5.000.000 kr. til allt að þriggja ára. Þú ákveður lánsupphæðina, lánstímann og hámarksvexti sjálf(ur). Lánveitendur bjóða í lánið (lágmarksvexti sem þeir eru tilbúnir að fá) en á bak við hvert lán eru yfirleitt margir lánveitendur. Þeir sem bjóða lægstu vextina verða að loknu uppboði lánveitendur lánsins. Lántakandi greiðir af láninu mánaðarlega.
Á bak við hvert lán geta verið margir einstaklingar sem treysta því að fá fjármagn sitt endurgreitt. Lántakendur eru hvattir til að vera raunsæir þegar þeir sækja um lán en hægt er að setja forsendur í lánareiknivélina og fá yfirlit yfir mánaðargreiðslur.
Lánategundir
Hægt er að velja um tvenns konar lánategundir. Annars vegar jafngreiðslulán þar sem fyrsta greiðsla er alltaf rúmum mánaði eftir að þú samþykkir lánið. Hins vegar er hægt að fresta greiðslu um allt að 9 mánuði sem er þá fyrir aðila sem fá ekki tekjur af verkefninu strax og þurfa tíma áður en hafist er handa að greiða af láninu.
Hversu miklar upplýsingar þarf að setja í lánsumsókn?
Mikilvægt er að útskýra vel í lánsumsókninni hvað þú ætlar þér með lánið. Þú þarft að setja inn stutta lýsingu á tilgangi láns og getur líka sett inn upplýsingar um helstu markmið, stöðu verkefnis og fjárhagslega stöðu. Hafðu í huga að textinn sé hnitmiðaður fyrir lánveitendur að lesa og lýsi vel því sem þú ætlar að taka þér fyrir hendur. Þú getur líka sett inn frekari upplýsingar eins og myndband eða glærur undir þig sem notanda og látið vita í lánsumsókn.
Þú þarft að gera upp við þig hversu háa lánsupphæð þú sækist eftir, hámarksvexti og á hvaða tíma þú treystir þér til að greiða lánið til baka.
Hvaða skilyrði þurfa lántakendur að uppfylla?
Lántakendur þurfa að vera orðnir 18 ára, ekki á vanskilaskrá og með íslenskan bankareikning. Upplýsingar um lánshæfi lántakanda fylgir hverri lánsumsókn en lántakandi ræður hvort hann birtir nafn sitt eða notandanafn með lánsumsókn en mögulega eru lánveitendur viljugri til að lána þeim sem gefa upp nafn sitt. Lánveitendur geta því verið að taka ákvörðun um að lána út frá tilefni láns, vöxtum, hversu lengi þeir vilja festa peninginn sinn eða út frá lánshæfi lántakanda.
Engin veð eru tekin og lánveitendur taka ákvarðanir algjörlega út frá upplýsingunum sem eru í lánsumsókninni því er mikilvægt að vanda til verks.
Hér er lánaferlinu lýst á einfaldan hátt:
