Um lánshæfi
Allir sem óska eftir láni í gegnum Uppsprettu fara í lánshæfismat sem birtist með hverri lánsumsókn. Upplýsingar um lánshæfi er fengið frá Creditinfo. Upplýsingar um lánshæfi segja til um líkur á alvarlegum vanskilum innan 12 mánuða, þ.e. að lántakandi verði skráður á vanskilaskrá.
Lánshæfismat er reiknað út frá ýmsum breytum sem hafa mismikið vægi t.d. tekjuupplýsingum úr skatta og útsvarsskrá, vanskilaupplýsingar en einnig úr frá reiknilíkani þar sem tekið er tillit til efnahagsástands.
Upplýsingar um lánshæfi eru mikilvægar fyrir lánveitendur þar sem lánshæfi gefur til kynna mögulega greiðslugetu. Aftur á móti er það í höndum lánveitenda hvort þeir velji lánsumsóknir út frá lánshæfi, vöxtum eða hugmynd. Leiða má líkum að þeir sem eru með góða lánshæfiseinkunn fái betri vexti frá lánveitendum sínum en þeir sem eru með síðra skor.
Einstaklingar - lánshæfismat
Einstaklingar fara í svokallað CIP lánshæfismat hjá Creditinfo Ísland. Lánshæfismatið flokkar einstaklinga í einn af fimm áhættuflokkum. Flokkur A er áhættuminnstur og flokkur E áhættumestur. Í hverjum flokki eru þrír undirflokkar. Til að mynda eru 0,01-0,19% líkur á að þeir sem eru í flokki A1 lendi í alvarlegum vanskilum innan 12 mánuða. Taflan fyrir neðan sýnir mögulegar lánshæfiseinkunnir, áhættumatið sem fylgir hverri einkunn og segir til um líkur á vanskilum og hversu margir eru flokkaðir í hvern flokk m.v. tölur frá september 2009.| Lánshæfiseinkunn | Áhættumat (skor) | Fjöldi | Fjöldi% |
|---|---|---|---|
| A1 | 0,01% - 0,19% |
1613 |
0,7% |
| A2 |
0,20% - 0,35% |
3378 |
1,5% |
| A3 |
0,36% - 0,43% |
2511 |
1,1% |
| B1 |
0,44% - 0,78% | 32088 |
14,6% |
| B2 |
0,79% - 0,99% |
22617 |
10,3% |
| B3 |
1% - 1,76% |
62738 |
28,5% |
| C1 |
1,77% - 2,24% |
30068 |
13,7% |
| C2 |
2,25% - 3,96% |
32832 |
14,9% |
| C3 | 3,97% - 5,00% | 7010 |
3,2% |
| D1 | 5,01% - 8,93% | 11315 |
5,1% |
| D2 |
8,94% - 11,11% |
2970 |
1,4% |
| D3 |
11,12% - 20% |
5516 |
2,5% |
| E1 |
20,01% - 55,18% |
3938 |
1,8% |
| E2 |
55,19% - 95,01% |
1212 |
0,6% |
| E3 |
95,02% - 100% |
156 |
0,1% |
Fyrirtæki - lánshæfismat
Fyrirtæki fara í gegnum CIP áhættumat sem metur líkur á alvarlegum vanskilum innan 12 mánuða. Flokkarnir eru 10. Til að mynda er allt að 0,1% líkur á að fyrirtæki í flokki eitt lendi í alvarlegum vanskilum innan 12 mánuða. Taflan fyrir neðan sýnir mögulegar lánshæfiseinkunnir, áhættumatið sem fylgir hverri einkunn og segir til um líkur á vanskilum og hversu margir eru flokkaðir í hvern flokk m.v. tölur frá september 2009.| Lánshæfiseinkunn | Áhættumat (skor) | Fjöldi |
Fjöldi % |
|---|---|---|---|
| 1 | 0,0% - 0,1% | 221 |
0,8% |
| 2 |
0,1% - 0,25% | 548 |
2,1% |
| 3 |
0,25% - 0,5% | 1026 |
3,9% |
| 4 |
0,5% - 1,5% | 3067 |
11,6% |
| 5 |
1,5% - 3% | 3692 |
13,9% |
| 6 |
3% - 5% | 3109 |
11,7% |
| 7 |
5% - 10% | 4302 |
16,2% |
| 8 |
10% - 25% | 5262 |
19,9% |
| 9 | 25% - 50% | 3275 |
12,4% |
| 10 | 50% - 100% | 1977 |
7,5% |

