Er að hlaða...

Uppspretta

Nýskrá | Innskrá mig

eða Innskrá mig í gegnum

Veita lán

Nýskrá mig

Skoða lánsumsóknir

Það er auðvelt að lána í gegnum Uppsprettu. Það sem þú þarft að gera er að fara í gegnum einfalda og örugga skráningu áður en þú velur hverjum þú vilt lána. Þú getur valið að lána út frá lánskjörum, lánshæfi eða út frá verkefni sem þú vilt styðja við. Lægsta lánsupphæðin sem þú getur lánað er 5.000 kr.

Hvernig fer þetta fram?

Þú byrjar á því að skrá þig inn í þjónustuna og veita nauðsynlegar upplýsingar. Áður en þú velur lánsumsókn þarftu að leggja inn á reikning upphæð sem þú ætlar þér að lána. Þú býður síðan í lánsumsókn sem þér líst vel á og þegar lánsuppboði er lokið færðu að vita hvort þú verður einn af lánveitendunum. Þeir sem bjóða lægstu vextina verða valdir sem lánveitendur en lokavextir verða þeir sömu fyrir alla. Til að mynda ef lægstu vextirnir eru 12%, 13%, og 14%, þá verða lokavextir 14%. Þú færð mánaðarlega endurgreiðslu frá lántakanda inn á reikninginn þinn hjá Uppsprettu sem þú getur fylgst með á þinni síðu.

Uppspretta sér um að miðla lánum og endurgreiðslum á milli lántakanda og lanveitenda ásamt því að halda utan um lánssamninginn. Uppspretta rýnir ekki hugmyndirnar í lánsumsóknunum. Lántakandi ber ábyrgð á þeim upplýsingum sem hann setur inn í lánsumsókn. Ef þú vilt fá betri upplýsingar um tilefni láns þá getur þú sent fyrirspurn á lántakanda og óskað eftir skýringum með því að nota spjallið í lánsumsókninni.

Í stuttu máli:
  • Skráðu þig sem notanda á Uppsprettu
  • Veldu hverjum þú ætlar að lána, bjóddu í lánið og settu fram þínar kröfur um lágmarksvexti
  • Þú ert látin(n) vita ef þú ert á meðal þeirra sem leggja fram lánsframlag að tilboðstímanum loknum 
  • Uppspretta sér um að miðla láninu til lántakanda og miðla endurgreiðslum til lánveitenda
  • Eindagi lántakanda er 5. hvers mánaðar og þú getur nálgast endurgreiðsluna einum virkum degi eftir eindaga
  • Þú getur valið um að taka út endurgreiðsluna strax eða lánað öðrum og haldið áfram að ávaxta peninginn þinn

Af hverju að lána?

  • Þú hjálpar öðrum að ná árangri með því að lána þeim og tekur óbeint þátt í verkefninu þeirra
  • Þú velur sjálfur hvernig þú vilt fjárfesta peningum þínum
  • Þú færð yfirlit yfir lánsumsóknir og velur það sem hentar þér
  • Þú getur fengið góða ávöxtun á lágar upphæðir
  • Þú getur spurt lántakandann með því að setja inn fyrirspurn ef eitthvað er óljóst